11.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (SE):

Þá verður fundi fram haldið, og liggur næst fyrir rannsókn kjörbréfa. Skv. 1. gr. þingskapa ber að skipa þm. í kjördeildir með hlutkesti. Þessum hlutkestum verður hagað þannig, ef enginn mælir því í gegn, að ég mun lesa upp nöfn þm. í stafrófsröð, en skrifstofustjóri Alþingis dregur jafnóðum miða með töluröð kjördeilda, sem þm. taka svo sæti í. Ég vil biðja hv. 1. þm. Norðurl. v. og hv. 12. þm. Reykv. að gera svo vel að gegna skrifarastörfum.

Þessu næst skiptust þm. í kjördeildir, og urðu í

1. kjördeild:

ÁB, BK, BGuðm, BP, EggÞ, EystJ, GilsG, GunnG, HV, JÁH, JSk, JR, KGuðj, MK, ÓIJ, PB, SI, SE, SvG, KTh.

2. kjördeild:

ÁÞ, BF, BGuðbj, BJ, EðS, EmJ, GeirG, GuðlG, IngJ, IG, JóhH, JÞ, JónasÁ, MB, ÓB, PJ, SB, SP, StG, VH.

3. kjördeild:

GeirH, BGr, BBen, BFB, BrS, EÁ, FÞ, GíslG, GÞG, HS, JónÁ, JP, LJós, MJ, MÁM, PÞ, PS, SkG, SV, SvJ.

Fyrir lá að rannsaka kjörbréf allra alþm. Skiptu kjördeildir með sér kjörbréfum, svo sem lög mæla fyrir, þannig að 1. kjördeild hlaut til rannsóknar kjörbréf þeirra þm., sem voru í 3. kjördeild, 2. kjördeild kjörbréf þm., sem eiga sæti í 1. kjördeild, og 3. kjördeild rannsakar kjörbréf þeirra þm., sem skipa 2. kjördeild.

Varð nú fundarhlé, en kjördeildir gengu úr þingsalnum til starfa sinna, en að rannsókn lokinni var fundi fram haldið.