20.12.1967
Sameinað þing: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (500)

1. mál, fjárlög 1968

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti: Það hljóta að vera nokkrir dagar síðan 1. liður þessarar till. var skrifaður. Nú fyrir tveimur eða þremur dögum varð samkomulag um það í Sexmannanefnd að taka fóðurbætishækkunina, sem varð vegna gengisbreytingarinnar, inn í verðlagið. Af því leiðir, að þessi 1. liður till. á alls ekki hér heima, og þar sem þeir eru allir bornir upp í einu, segi ég nei.