20.12.1967
Sameinað þing: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (503)
1. mál, fjárlög 1968
Björn Pálsson:
Herra forseti. Þar sem það er tekið fram í þessari till., að 15% af heildarsölu áfengis, en þar getur líka verið átt við af magninu, eigi að fara saman við vatnið, virðist mér það vera óþarfa sóun á verðmætum, sem orðið getur mönnum til gleði, ef það er rétt notað.
Í öðru lagi tel ég dálítið hætt við því, að Vestmannaeyingar auki drykkjuskap sinn mjög, ef þeir eiga að fá 15% af andvirði þess, sem selt er, ef till. yrði skilin þannig, og það gæti orðið til tafar við fiskvinnslu og róðra í Vestmannaeyjum, og þar sem bæði ég og aðrir hafa greitt atkv. með nógu mörgum misvitrum till. hér, vil ég ekki bæta þessari við, og segi því nei.