04.04.1968
Efri deild: 81. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (901)

140. mál, ríkisreikningurinn 1966

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta mál til athugunar, og eins og nál. á þskj. 506 ber með sér, leggur n. til, að frv. verði samþ. óbreytt. Enda var, eins og ríkisreikningurinn bar með sér, engum af þeim aths., sem endurskoðendur gerðu við reikninginn, vísað til aðgerða Alþ.