06.03.1969
Neðri deild: 61. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 974 í B-deild Alþingistíðinda. (1083)

97. mál, brunavarnir og brunamál

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið afgreitt frá hv. Ed. með nokkrum minni háttar breytingum, þó aðallega tveimur, svo sem fram hefur komið á sérstöku þskj. þar um. En frv. var flutt á síðasta þingi einnig, en náði þá ekki fram að ganga. Ég tel brýna nauðsyn bera til, að frv. þetta nái nú fram að ganga, enda lögð á það mikil áherzla af tryggingafélögunum, að ný skipan komist á þessi mál, og er fyrirhugað, að kostnaður verði uppi borinn af þeim, svo að hér er nánast um samstarf þeirra innbyrðis að ræða til betri skipunar þessara mála.

Með bréfi dags. 28. október 1966 fól félmrn. Bárði Daníelssyni yfirumsjónarmanni brunavarna að athuga og gera till. um, með hvaða hætti skipulag og starfsemi Brunavarnaeftirlits ríkisins skyldi háttað, þannig að það gæti sem bezt gegnt þeim meginhlutverkum sínum að leiðbeina sveitarstjórnum um allar verklegar og skipulegar framkvæmdir til brunavarna og hafa yfirumsjón með ákvæðum l. um brunavarnir og brunamál og að þeim verði hlýtt. Með bréfi dags. 29. desember sama ár fól rn. Páli Líndal borgarlögmanni að vinna að framangreindu verkefni með yfirumsjónarmanni brunavarna, og skyldu þeir skila rn. niðurstöðum sínum svo fljótt sem kostur væri á og þá helzt í frv.-formi.

Frv. það til laga um brunavarnir og brunamál, sem hér er lagt fram, er eins og framangreindir menn gengu frá því að öðru leyti en þeim breytingum, sem á voru gerðar í Ed. Alþ. um yfirstjórn málanna, yfirstjórn brunamála, en þar var lagt til og samþ., að sérstök stjórn skyldi kosin til þess að hafa þessa yfirumsjón með fulltrúum Sambands ísl. sveitarfélaga og tryggingafélaganna ásamt einum fulltrúa tilnefndum af félmrn. Skipulagðar brunavarnir eiga sér ekki langa sögu hér á landi. Strjálbýlið gerði ókleift að koma slíku við. Þegar eldur kom upp, urðu menn að treysta á eigið atfylgi og nágranna sinna til allra slökkvistarfa. Fyrstu opinberar reglur, sem settar voru á Íslandi um brunavarnir eða brunamál, voru settar fyrir 11/2 öld síðan, eða 1. apríl 1807. En þann dag gaf stiftamtmaður út auglýsingu um varnir gegn brunahættu í Reykjavík. Vísir að slökkviliði tók að þróast í Reykjavík á 2. þriðjungi 19. aldar, en árið 1875 eru sett sérstök lög um brunamálefni í Reykjavík, þar sem nákvæmlega er kveðið á um meðferð brunamála. Þau lög héldu gildi sínu, unz sett voru núgildandi lög um brunavarnir í Reykjavík nr. 28 frá 1945. Heildarlög um brunamálefni utan Reykjavíkur voru fyrst sett með l. nr. 85 frá 1907, og var svo mælt fyrir í 39. gr., að lögin giltu fyrir kaupstaði utan Reykjavíkur, verzlunarstaði og aðra þá staði og húseignir, sem eigi féllu undir l. frá 20. okt. 1905 um vátryggingu sveitabæja og annarra húsa í sveitum utan kauptúna.

Jafnhliða þessum lögum giltu sérlög um slökkvilið á Ísafirði frá 1883, Seyðisfirði frá 1901, Akureyri frá 1905 og Hafnarfirði frá 1909. Öll þessi löggjöf var afnumin með núgildandi l. nr. 37 frá 1948, en samkv. þeim lögum var síðan sett reglugerð nr. 167 1949. Með þessari löggjöf um brunavarnir og brunamál var vissulega stigið spor í rétta átt, því að þar er að finna allýtarleg ákvæði um skipulag brunavarnamála, um slökkvilið, meðferð á eldi, ljósum og eldfimum efnum, frágang eldfæra og eldfæraeftirlit, skyldur borgaranna, ef eldsvoða ber að höndum, um brunavarnir og um gerð húsa með tilliti til brunavarna o.fl. Öllum, sem fylgzt hafa með, er kunnugt um hin miklu brunatjón, sem hér hafa átt sér stað á undanförnum árum, ekki aðeins hin beinu tjón á lausafé og fasteignum, heldur einnig tjón vegna rekstursstöðvana af völdum eldsvoða. Í febrúar 1958 var samþ. þál. á Alþ. um varnir gegn brunatjóni, og var þar skorað á ríkisstj. að láta þegar fara fram ýtarlega rannsókn hinna færustu manna á orsökum hinna tíðu eldsvoða, sem valdið hafa miklu tjóni á atvinnutækjum þjóðarinnar, og gera hverjar þær ráðstafanir, sem þurfa þykir, til að draga úr eldhættu í atvinnufyrirtækjum, og í september sama ár skipaði félmrh. 6 menn undir forsæti fyrrv. yfirumsjónarmanns brunavarna, Geirs Zoëga, í nefnd til þess að annast rannsókn þá og gera svo þær till., sem um er fjallað í nefndri þál. Nál. birtist í júní 1959. Nm. voru sammála um, að helztu orsakir eldsvoða í atvinnutækjum væru í fyrsta lagi slæm umgengni og vanræksla í umbúnaði tækjanna, í öðru lagi lélegur og ófullkominn útbúnaður og frágangur rafmagnstækja og raflagna, í þriðja lagi ófullkominn og trassafenginn frágangur olíukynditækja, í fjórða lagi byggingargallar frá tæknilegu sjónarmiði eldvarna við uppsetningu þurrkofna og hitunartækja, véla o.fl. og í fimmta lagi væru bráðabirgðatæki til hitunar og lýsingar, aðallega í sambandi við nýbyggingar, í slæmu ásigkomulagi.

Í sambandi við væntanlegar úrbætur á hinu mikla ófremdarástandi í þessum málum lögðu nm. m.a. til, að hinar þrjár stofnanir, sem hafa eftirlit með öryggisútbúnaði húsa og véla, þ.e. Brunavarnaeftirlitið, Rafmagnseftirlitið og Öryggiseftirlitið, herði mjög allt eftirlit og gangi ríkt eftir, að fyrirmælum laga og reglugerða um frágang og öryggisútbúnað sé hlýtt, einnig að gerðar verði nauðsynlegar laga- og reglugerðarbreytingar til að tryggja raunhæfa framkvæmd eftirlitsins. enn fremur, að tekin verði upp markviss almenn fræðslustarfsemi um þessi mál, og loks, að reynt verði, eftir því sem frekast er unnt, að upplýsa orsakir eldsvoða, og séu niðurstöður réttarrannsókna teknar fram í skjölum málsins. Þá gerði n. till. varðandi verksvið og stjórn Brunavarnaeftirlits ríkisins og gerði að sjálfsögðu ráð fyrir lagabreytingu eða setningu nýrra laga í því sambandi.

Eins og vikið er að í aths. við lagafrv. þetta hefur brunatjón á Íslandi numið geigvænlegum upphæðum hin síðari ár, og það, sem verra er, að það er hér tvöfalt eða þrefalt meira en í nágrannalöndum okkar, a.m.k. miðað við 5–6 síðustu ár. Þó er það verst, að auðvelt mun að sýna fram á, að þetta mikla brunatjón stafi að verulegu leyti af skorti á eftirliti og fræðslu á sviði brunamála. Brunavarnaeftirlit ríkisins þarf að efla svo, að það geti annað verkefnum sínum á raunhæfan hátt, svo sem ráð er fyrir gert í þessu frv. Fræðslustarfsemi og kynningu á brunamálum þarf að efla og efla sjálfar brunavarnirnar, hvort sem er með áróðri í skólum, dagblöðum, útvarpi eða sjónvarpi, og það þarf að auka þann áróður mjög, einnig að efna til námskeiða fyrir slökkviliðsmenn úti á landi, enda ráð fyrir því gert í frv. þessu.

Eins og frv. ber með sér, er hér fyrst og fremst um heildarlög að ræða, hins vegar er ætlazt til, að kveðið verði nánar á um ýmis framkvæmdaratriði í reglum um tæknimál og reglur um tæknimálefni settar í sérstakar reglugerðir, sem settar verði eftir samþykkt frv.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.