08.05.1969
Neðri deild: 90. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

169. mál, lækningaleyfi o.fl.

Frsm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. hefur fjallað um frv. þetta um breytingu á l. nr. 47 23. júní 1932, um lækningaleyfi o.fl.

Frv. þetta er samið á vegum landlæknis. Það hefur verið sent til umsagnar Læknafélags Íslands. Því var lítið eitt breytt í Ed., aðallega hvað formið snertir, síðan samþ. þar samhlj. Heilbr.- og félmn. leggur til, að frv. verði samþ.