25.04.1969
Neðri deild: 81. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)

117. mál, Háskóli Íslands

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Af því að hæstv. dómsmrh. virðist vera svona fróður um þessi mál og getur upplýst, að það séu margir ættfræðiprófessorar í Kanada og Bandaríkjunum, þá vil ég spyrja hann, hvort hann gæti upplýst það, hvort þessir prófessorar séu við lagadeildir þessara skóla.