06.05.1969
Neðri deild: 89. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)
233. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Birgir Finnsson:
Herra forseti. Sjútvn. hv. d. hefur fjallað um þetta frv. milli 2. og 3. umr. og orðið sammála um að flytja eina litla brtt. Skal ég gera hér grein fyrir henni. Eins og hv. þdm. minnast, var í gær gerð breyt. á 2. gr., lið E9, sem fjallar um það, að „ráðh. er heimilt að banna með reglugerð botnvörpu- og flotvörpuveiðar á tímabilinu 1. janúar til 1. maí,“ eins og í frv. stóð. Þessum tímamörkum var breytt í gær þannig að í stað „1. maí“ kom 15. maí. Tilsvarandi ákvæði og þarna eru fyrir Reykjanes- og Faxaflóasvæðið eru í frv. fyrir Breiðafjarðarsvæðið í lið, sem merktur er F5.
Till. sjútvn. er sú, að hliðstæð breyting verði gerð á liðnum F5 og í gær var gerð á liðnum E9, þannig að í stað orðanna „til 1. maí“ komi orðin „til 15. maí.“ Ég leyfi mér fyrir hönd sjútvn. að leggja fram þessa till., en þar sem ekki hefur unnizt tími til að prenta hana og útbýta, fer ég þess á leit við hæstv. forseta, að hann leiti afbrigða fyrir henni.
Ég vil geta þess, að sjútvn. hafði m.a. til meðferðar í morgun þá till., sem hv. 6. landsk. þm. mælti fyrir hér áðan, en innan n. var ekki samkomulag um þá till. Sömuleiðis var rætt um í n., hvort samkomulag gæti orðið um það að breyta ákvæðum frv. frá því, sem nú er, að því er varðar heimildir fyrir öll togskip til að veiða á tveim ákveðnum svæðum, á Faxaflóa og Breiðafirði, í það horf, að á þessum svæðum verði aðeins leyfilegar veiðar fyrir togskip allt að 350 tonna. Um þessar hugmyndir varð heldur ekki samkomulag innan n., og hafa nm. ekki tekið upp till. varðandi þessi atriði, en hafa að sjálfsögðu óbundnar hendur um þær brtt. og eins aðrar brtt., sem fram kynnu að koma. Einnig var rædd till. frá einum nm. um það að breyta ákvæðum frv. á þann veg, að alls staðar, þar sem frv. gerir nú ráð fyrir, að 350 tonna skip megi veiða, verði stórum togurum einnig leyft að veiða, ef þeir leggi afla sinn upp til vinnslu hér á landi. Um þessa brtt. varð heldur ekki samkomulag í sjútvn. Eins og ég sagði áðan, hafa sjútvnm. óbundnar hendur í afstöðu sinni til annarra till. en þeirrar, sem ég hef hér lýst fyrir n. hönd.