06.05.1969
Neðri deild: 89. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1219)

233. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur að beiðni þm. og hæstv. forseta komið saman til að athuga þær brtt., sem fyrir liggja við frv. til l. um heimildir til botnvörpuveiða innan landhelginnar. Er skemmst frá því að segja, að innan n. er ekki samkomulag um neina af þessum brtt., og get ég því ekki fyrir hönd n. mælt með þeim eða móti.