12.05.1969
Efri deild: 91. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)

104. mál, tollheimta og tolleftirlit

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Það er aðeins út af prentvillu, sem er hér í nál., sem mér láðist að vekja athygli á í framsöguræðu minni. Hún er nú í rauninni auðsæ. Það stendur, að nál. sé frá fjárveitinganefnd, en á auðvitað að vera frá fjárhagsnefnd.