17.04.1969
Efri deild: 75. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)
203. mál, áburðarverksmiðja ríkisins
Frsm. (Steinþór Gestsson):
Herra forseti. Landbn. fékk þetta frv. til athugunar og ræddi það og athugaði á fundi sínum og varð sammála um að mæla með því, að það yrði samþ. Hins vegar hafa 2 nm. borið fram brtt. við það á sérstöku þskj., þskj. 462, sem meiri hl. gat ekki fallizt á.
Ég sé ekki ástæðu til að fara ýkjamörgum orðum um það frv., sem hér liggur fyrir. Eins og fram kom í ræðu hæstv. landbrh. við fyrstu umr. þessa máls hér í hv. deild, þá er ástæðan fyrir þeirri breyt., sem þetta frv. gerir ráð fyrir, sú, að áformuð er stækkun á verksmiðjunni, svo að hún geti betur sinnt því hlutverki, sem henni er ætlað, að framleiða og hafa á markaði þau áburðarefni, sem þörf er fyrir og not er fyrir í landbúnaðinum. Sá áfangi, sem nú er stefnt að að koma fram, mun eftir áætlun kosta nokkuð á 3. hundrað millj. kr., og eins og nú er háttað málum, þar sem Áburðarverksmiðjan er hlutafélag og það er vitað, að hlutafjárhafarnir munu ekki hafa áhuga á að leggja þetta fjármagn fram, sem til þarf til þess að koma stækkuninni áfram, þá er það einsýnt, að til þess að verksmiðjan geti komizt í það horf, sem henni er ætlað, þá þyrfti ríkið að koma þar til skjalanna, og því er þetta frv. flutt, að svo megi verða. Stéttarsamband bænda, Búnaðarfélag Íslands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins hafa látið verksmiðjustjórninni í té sameiginlegt álit úm þær áburðartegundir, sem þeir telja, að hér þurfi að framleiða, og er sú stækkun, sem fyrirhuguð er, áætluð og undirbúin, til þess að hægt verði að verða við þeim óskum.
Eins og ég gat um, þá hefur landbn. farið yfir þessi lög allvendilega, og það kemur berlega í ljós, að þau eru í öllum aðalatriðum samhljóða þeim lögum, sem núna eru í gildi um Áburðarverksmiðjuna, að því leyti sem það getur átt við. Hins vegar eru í þessu frv. ákvæði, sem þar þurfa að vera með til þess að koma á þeirri breyt., sem hér er ætlað að koma fram. Þetta mál er ekki nýtt fyrir Alþ. Á síðasta þingi var samþ. frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að kaupa hlutabréf Áburðarverksmiðjunnar h.f., til þess að þessi breyt. gæti komizt á. Eftir því hefur nú verið leitað, og ég minni aðeins á ummæli hæstv. landbrh., þegar hann mælti fyrir frv. hér við fyrstu umr. hér í þessari hv. deild, skírskota til þeirra um þau viðbrögð, sem hluthafarnir hafa haft um þau efni, og þetta frv. og ákvörðun, sem bak við það felst, er beint framhald af fyrri lagasetningu, sem sett var á síðasta þingi.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að svo komnu máli að hafa fleiri orð um þetta frv., en legg til, að frv. verði samþ. óbreytt.