29.04.1969
Neðri deild: 83. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (1479)

216. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1969

Frsm. meiri hl. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Ég skal taka fram, enda er ekki gerð krafa um það, að ég er ekki viðbúinn að svara þeirri fsp., sem hér var beint til mín sem frsm. um það mál, sem hér liggur fyrir. En ég skal vissulega reyna að afla þeirra upplýsinga, sem þarna er beðið um, og láta þær koma fram við 3. umr. málsins.