25.04.1969
Neðri deild: 81. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1686 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

172. mál, sala Hauganesslands

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið sent til umsagnar bæði Landnáminu og Jarðeignadeild ríkisins, eins og venja er til um slík frv., og hafa ekki neinar mótbárur komið frá þessum aðilum gegn því að heimila þessa jarðarsölu, og mælir n. eindregið með því, að frv. verði samþykkt.