17.04.1969
Neðri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1753 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

211. mál, heimild að selja Keflavíkurkaupstað landssvæði sem tilheyrði samningssvæði varnarliðsins

Flm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt fjórum hv. þm. þessarar d. að flytja frv. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að selja Keflavíkurkaupstað landssvæði, sem áður tilheyrði samningssvæði varnarliðsins. Fram kemur í grg., að frv. er flutt að beiðni bæjarstjórnar Keflavíkur, en hér er um að ræða landssvæði það, sem með l. frá 1966 var fært undir lögsagnarumdæmi Keflavíkurkaupstaðar.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um frv. en legg til að að lokinni þessari umr. verði því vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.