14.04.1969
Efri deild: 73. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)
198. mál, loðdýrarækt
Karl Guðjónsson:
Herra forseti. Eins og fram hefur komið hér í umr., stendur að flutningi þessa frv. meiri hl. allshn. d., en þegar um það var rætt í n., að það væri nokkuð óvenjulegt, að nefndarhluti flytti frv., þá var einnig um það talað, að þeir, sem að flutningnum stæðu, gætu komið fram aths. sínum við einstaka liði frv., enda þótt þeir fylgdu því að meginefni. Ég tel þess vegna vera býsna fjarri lagi að vísa ekki málinu til neinnar n., þar sem það hefur þó í för með sér, að sá minni hl., sem ekki felldi sig við flutning frv. í n., á þess ekki kost að gefa út neitt nál. um málið. Þess vegna geri ég það að till. minni, eftir að fellt hefur verið að vísa frv. til þeirrar n., sem till. hafði komið fram um, að málinu verði formlega vísað að nýju til allshn. og það fái þar þinglega meðferð, þannig að þeir nefndarhlutar, sá nefndarhluti eða þeir nefndarhlutar, sem vilja koma sérstöku áliti á framfæri um málið, eigi þess kost eins og um önnur mál. Þess vegna er það mín till., að því verði vísað til allshn. til afgreiðslu með þessum hætti.