17.05.1969
Neðri deild: 96. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (2119)

239. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur rætt frv. til l. um breyt. á l. nr. 21 27. apríl 1968, um breyt. á l. nr. 19 10 maí 1965, um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Frv. þetta er komið frá Ed. og var samþ. þar shlj. Nm. í heilbr.- og félmn. Nd. eru sammála um það að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það kom til d.