25.02.1969
Sameinað þing: 32. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2041 í B-deild Alþingistíðinda. (2166)

Efnahagsmál

Forseti (BF):

Forseti vill minna á, að þessi umr. hefur nú staðið í rúmlega 9½ klukkustund, og þar sem forseti hefur áhuga á að reyna að ljúka umr. í kvöld, vill hann leyfa sér að beina þeim tilmælum til þeirra hv. alþm., sem enn eru á mælendaskrá, að þeir noti ræðutíma sinn vel og skynsamlega, þannig að ekki þurfi að koma til skömmtunar á ræðutíma vegna tímaskorts.