28.10.1968
Sameinað þing: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2140 í B-deild Alþingistíðinda. (2185)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Ég gerði grein fyrir því áðan, hvers vegna ég hefði kvatt mér hljóðs í dag. Það var vegna þess, að ég vildi mótmæla því, að yfirmaður hernámsliðsins væri hér með ræðuflutning og áróður um íslenzk innanríkismál, og ég beindi því til hæstv. ríkisstj. og hæstv. ráðh., að hann gerði nú þegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir, að slíkir atburðir endurtaki sig. Við eigum ekki að þola það, að þessi erlendi aðmíráll sé að flytja ræður um þau mál, sem við eigum einir að taka ákvörðun um. Þessu var lýst mjög hátíðlega yfir, þegar hernámssamningurinn var gerður, að hið erlenda lið mundi á engan hátt hafa íhlutun um innanlandsmál okkar, og það er verkefni hæstv. utanrrh. að tryggja það, að um slíka íhlutun sé ekki að ræða. En því miður tók hæstv. ráðh. ekkert undir þessa aths.
Ég bar einnig fram spurningar áðan og hæstv. ráðh. svaraði þeim raunar. Hann sagði, að þessi mál hefðu ekki verið rædd innan ríkisstj., og um það var ég einmitt að spyrja. Ég ætlaði mér ekki að koma neitt aftan að hæstv. ráðh.; ég taldi, að það væri ósköp einfalt mál, ef þetta hefði ekki verið rætt innan ríkisstj., að segja það eins og hæstv. ráðh. sagði, þannig að það er alveg ástæðulaust að snupra mig í sambandi við það. Almennar fsp. ber ég hér fram eins og háttur er á þingi.
En hitt atriðið er fullkomið alvörumál, að hæstv. ríkisstj. fylgist vandlega með því, að það erlenda lið, sem dvelst hér, sé ekki með ótímabæra íhlutun um innanlandsmál okkar Íslendinga. Ég tók eftir því í þessari frétt í Morgunblaðinu, að á það var lögð sérstök áherzla af aðmírálnum, að hernámsliðið veitti yfir 900 millj. kr. á ári inn í íslenzkt efnahagskerfi, eins og það var orðað. Það var auðséð, að aðmírállinn vildi leggja áherzlu á það, að við hefðum af því fjárhagslegan ábata að vera með hinn erlenda her á Íslandi. Við vitum ákaflega mörg dæmi um það, að hernámsliðið hefur reynt að komast í samband við fjölmarga aðila hér á Íslandi, félagasamtök og einstaklinga, og það vill reyna að búa þannig um, að vist þess hér sé talin eðlilegur hlutur. En hún má aldrei verða eðlilegur hlutur, ef við hyggjum á þá framtíð að fá að búa einir í landi okkar. Þess vegna á það að vera sérstök skylda þeirra manna, sem kölluðu her inn í landið, að gæta þess, að allir samningar séu fullkomlega í heiðri hafðir og að yfirmenn hernámsliðsins séu ekki með íhlutun eins og þá, sem Stone aðmíráll hefur haft í frammi.