31.10.1968
Neðri deild: 8. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2187 í B-deild Alþingistíðinda. (2230)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 30. okt. 1968.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Kristján Thorlacius deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þórarinn Þórarinsson.

4. þm. Reykv.

Kjörbréf Kristjáns Thorlacius hefur áður verið rannsakað á s. l. ári, og býð ég hann því velkominn til að taka sæti í hv. þd.