05.11.1968
Sameinað þing: 7. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2188 í B-deild Alþingistíðinda. (2233)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 4. nóv. 1968.

Formaður þingflokks Alþb. hefur ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Jónasar Árnasonar, 4. landsk. þm., sem nú er farinn utan í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþb., Hjalti Haraldsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Hjalta Haraldssonar sem landsk. varamanns fyrir Alþb. liggur hér fyrir, útgefið af landskjörstjórn, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka bréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]