07.11.1968
Neðri deild: 11. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2190 í B-deild Alþingistíðinda. (2239)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 5. nóv. 1968.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Pétur Pétursson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Benedikt Gröndal.

5. þm. Vesturl.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Péturs Péturssonar hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann hér með velkominn til þess að taka sæti í hv. þd.