02.12.1968
Sameinað þing: 16. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2191 í B-deild Alþingistíðinda. (2244)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hafa borizt: „Reykjavík, 30. nóv. 1968.

Björn Jónsson, 4. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varamaður Alþb. í Norðurl. e., Benóný Arnórsson bóndi, taki á meðan sæti á Alþ. í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

„Reykjavík, 30. nóv. 1968.

Karl Guðjónsson, 6. þm. Sunnl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Suðurlandskjördæmi, Björgvin Salómonsson skólastjóri, taki sæti á Alþ. í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

„Reykjavík, 2. des. 1968.

Bjarni Guðbjörnsson, 3. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Steingrímur Hermannsson verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggja kjörbréf þeirra varamanna, sem um ræðir í þeim bréfum, sem upp hafa verið lesin, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfin til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]