09.12.1968
Sameinað þing: 18. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 6. des. 1968.

Gils Guðmundsson, 5. þm. Reykn„ hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að þar sem 1. varamaður Alþb. í Reykn., Karl Sigurbergsson skipstjóri, er erlendis, taki 2. varamaður Alþb., Sigurður Grétar Guðmundsson pípulagningameistari, sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Sigurðar Grétars Guðmundssonar liggur hér fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]