07.02.1969
Sameinað þing: 27. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (2252)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (ÓB):

„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Gísla Guðmundssyni, 1. þm. Norðurl. e.:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Jónas Jónsson ráðunautur, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.“

Með þessu fylgir læknisvottorð frá Þórði Þórðarsyni lækni, þar sem hann vottar, að Gísli Guðmundsson, hv. 1. þm. Norðurl. e., verði vegna veikinda frá þingstörfum um skeið.

Þá mun ég næst afhenda formanni hv. kjörbréfanefndar kjörbréfið og gefa fundarhlé í nokkrar mínútur, þar til kjörbréfanefnd hefur lokið athugun sinni. — [Fundarhlé.]