10.02.1969
Neðri deild: 42. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (2255)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 10. febr. 1969.

Af sérstökum ástæðum heima fyrir get ég ekki sinnt þingstörfum næstu vikur. Ég leyfi mér því að biðja um fjarvistarleyfi og óska þess, með skírskotun til 138. gr. l. nr. 52 1959, um kosningar til Alþingis, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Tómas Árnason hrl., taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.

Vilhjálmur Hjálmarsson,

5. þm. Austf.“