20.02.1969
Neðri deild: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (2256)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (SB):
Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 20. febr. 1969.
Samkv. beiðni Jóhanns Hafstein dómsmrh., 5. þm. Reykv., sem er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki á meðan sæti hans á Alþingi.
Virðingarfyllst,
Þorv. Garðar Kristjánsson.“
Kjörbréf Geirs Hallgrímssonar hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.