27.02.1969
Efri deild: 52. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (JR):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Ólafi Jóhannessyni, hv. 3. þm. Norðurl. v.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Ég leyfi mér að bjóða Jón Kjartansson velkominn til starfa hér í hv. þingdeild.