14.04.1969
Neðri deild: 76. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (2268)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 12. apríl 1969.

Þar sem ég mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landskjörinna þm. Sjálfstfl. taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Sverrir Júlíusson,

10. landsk. þm.

Kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar, 1. varaþm. landsk. þm. Sjálfstfl., hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.