06.05.1969
Neðri deild: 89. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (2269)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (MÁM):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Þar sem ég vegna embættisanna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Óskar E. Levy bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Gunnar Gíslason,

2. þm. Norðurl. v.“

Óskar E. Levy bóndi hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað. Býð ég hann velkominn til þingstarfa.