12.05.1969
Sameinað þing: 49. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (2270)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 12. maí 1969.

Pálmi Jónsson, 4. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Vegna sérstakra anna heima fyrir mun ég ekki geta sótt þingfundi til loka þessa þings. Ég leyfi mér því að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 3. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v., Þorfinnur Bjarnason sveitarstjóri í Höfðakaupstað, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni. En sem kunnugt er sitja 1. og 2. varaþm. flokksins í kjördæminu nú á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf, útgefið af yfirkjörstjórn Norðurl. v. til handa Þorfinni Bjarnasyni, liggur hér fyrir. Leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. [Fundarhlé.]