19.12.1968
Efri deild: 39. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2206 í B-deild Alþingistíðinda. (2291)

Þingsetning

forseti (JR):

Væntanlega verður þetta síðasti fundur hv. Ed. fyrir þinghlé. Ég vildi því óska öllum hv. þdm. og vandamönnum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, jafnframt öllu starfsliði Alþingis. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vona, að við hittumst hér öll heil að jólaleyfi liðnu.