17.05.1969
Sameinað þing: 54. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2212 í B-deild Alþingistíðinda. (2310)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Í dag hefur verið gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Alþingi, 89. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, laugardaginn 17. maí 1969.

Gert í Reykjavík, 17. maí 1969.

Kristján Eldjárn.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Óska ég alþingismönnum velfarnaðar og þjóðinni allra heilla, og bið þingmenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp, og forsrh., Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.