16.05.1969
Neðri deild: 95. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2379)
207. mál, eyðing svartbaks
(Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég játa að ég hef ekkert heyrt um þetta mál fyrr. En ég tel alveg nauðsynlegt, að það verði athuga, að ekki sé hér verið að fara inn um bakdyrnar til þess að gera að engu það bann við eitrun fyrir fugla, sem Alþ. hefur ákveðið. Það er ljóst, að því aðeins að svo verði farið að, að eitrun eigi sér ekki stað, er einhver von til þess að örninn geti lifað af hér á landi. Og mér finnst þetta vera töluvert viðameira mál en í fljótu bragði er látið uppi.