02.05.1969
Efri deild: 84. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (2443)

70. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Pétur Benediktsson:

Herra forseti. Sem meðflm. þessa frv. vil ég aðeins segja, að ég er þakklátur bæði n. og þá ekki síður hæstv. fjmrh. fyrir umsögn hans um málið. Ég álít, að með þeirri afgreiðslu, sem fyrirhuguð er og rn. virðist sætta sig við, yrði mjög stórt skref stigið í málinu, og ég mun þess vegna með mikilli ánægju greiða atkv. þeirri till., sem fram hefur verið borin.