17.02.1969
Neðri deild: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í C-deild Alþingistíðinda. (2697)
132. mál, loðdýrarækt
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Þegar minkaræktin var bönnuð hér á landi sællar minningar, gerðu menn sér vonir um, að hægt væri að útrýma honum úr landinu með því móti. Nú hefur þetta ekki tekizt, eins og kunnugt er, og er svo komið, að það munu aðeins vera úteyjar einar, sem eru nú minklausar, þ. á m. Vestmannaeyjar. Nú virðist eiga að taka upp nýja stefnu í þessu máli í samræmi við aðrar stjórnarathafnir yfirstandandi tíma. Það er lagt til að leyfa minkaeldi að nýju, en aðeins þar sem enginn villiminkur er fyrir, og að öðru leyti skal minkaeldi bannað hér eftir sem hingað til annars staðar í landinu, sem sagt, allt í góðu samræmi hvað við annað.