20.12.1968
Sameinað þing: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í D-deild Alþingistíðinda. (2950)

119. mál, frestun á fundum Alþingis

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég sagði, að ég teldi þetta ábyrgðarlaust. Hæstv. dómsmrh. telur það ekki. Það stendur, sem hvor álítur um það. Hann færði engin rök gegn minni staðhæfingu um þetta.

Út af því, sem hann annars sagði, vil ég skora á hann að gefa hér yfirlýsingu um það, að ríkisstj. muni ekki grípa til brbl. á þessu tímabili. Annars falla orð hans dauð og ómerk.