30.10.1968
Sameinað þing: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í D-deild Alþingistíðinda. (3563)
255. mál, starfsaðstaða Bifreiðaeftirlits ríkisins
Fyrirspyrjandi (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir þennan mjög svo fróðlega fyrirlestur um starfsemi Bifreiðaeftirlits ríkisins. Og það kom fram af hans ræðu, hygg ég, að ég hafi hvergi ofsagt um slæma aðstöðu þar, meira að segja vansagt í ýmsum atriðum og sýnir það þá enn frekar, en ég gerði grein fyrir, hver þörf er á úrbótum í þessu efni.
Það er vafalaust rétt, sem hæstv. ráðh. greindi frá, að starfsaðstaða bifreiðaeftirlits er víðar vandamál heldur en í Reykjavík, en ég gerði Bifreiðaeftirlitið í Reykjavík fyrst og fremst að umtalsefni, vegna þess að ég hygg, að starfsaðstaðan sé hvergi lakari, en þar og tæpast með sanngirni hægt að ætlast til þess, að slíkar skoðunarstöðvar, sem hér hefur borið á góma, verði reistar fyrst um sinn a.m.k. annars staðar en hér, þar sem bifreiðafjöldinn er svo gífurlega mikill á okkar mælikvarða. Þar að auki hafði ég hugmynd um, að starfsaðstaðan utan Reykjavíkur hefði sums staðar a.m.k. verið nokkuð bætt. Þess vegna snerist mín ræða fyrst og fremst um aðstöðuna að Borgartúni 7.
Eins og hér hefur verið rakið, hefur starfsaðstaðan svo til ekkert batnað síðan 1947, en á þeim tíma hafa verkefnin margfaldazt, svo að það er ekki nema von, að hér þurfi aðgerða við og ég tel víst, að hv. Alþ. undir forustu hæstv. dómsmrh. taki þetta mál til athugunar og geri þær ráðstafanir, sem að gagni mega koma, því að það er vitanlega ekki nógað hafa lóð, þótt góð sé og uppdrætti til að byggja eftir, ef fjármagnið vantar. Ég verð að segja það sem mína skoðun, að ég tel það mjög vafasama hugmynd, sem aðeins skaut upp kollinum hjá hæstv. dómsmrh., að setja lög eða reglugerðir um það, að bifreiðaeigendur eigi að standa undir þeim talsverða byggingarkostnaði, sem hér er um að tefla. Hæstv. ráðh. gat þess, að fyrir nokkrum árum hefði skoðunargjaldið verið sérstaklega hækkað í þessu skyni og ég hygg, að það sé nú alveg nægilega hátt. Við verðum að hafa í huga, að hér er um hluta af almennri löggæzlu að ræða, sem eðlilegt er, að hið opinbera geri kleift að halda uppi á sama hátt og svo margri annarri löggæzlu, sem fjárveitingar eru veittar til. Þess vegna tel ég mjög eðlilegt og tel víst, að hv. alþm. taki því vel, þegar nú á næstunni verður leitað eftir heimild Alþ. til fjárveitinga í þessu skyni, því að eins og ég hygg, að hér hafi komið fram og allir hv. alþm. geta kynnt sér frekar, ef þeim þykir við þurfa, þá er ástand þessara. mála óhæft eins og það er.
Ég endurtek svo þakkir fyrir svörin.