06.11.1968
Sameinað þing: 8. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í D-deild Alþingistíðinda. (3579)

30. mál, fjárfesting ríkisbankanna

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Hæstv. ráðh. gaf hér upplýsingar um heildarfjárfestingu Landsbankans á undangengnum 8 árum. Sömuleiðis skildist mér hann nefna heildartölu hjá Búnaðarbankanum, en hins vegar var þetta mikið sundurslitið að því er varðaði Útvegsbankann. Þar taldi hann fyrst aðalbankann í Reykjavík og síðan útibú hingað og þangað, en ég vildi óska eftir að fá heildartöluna hjá Útvegsbankanum, eins og hjá hinum bönkunum, ef hæstv. ráðh. vildi gera svo vel og nefna hana.