11.12.1968
Sameinað þing: 19. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í D-deild Alþingistíðinda. (3739)

273. mál, fiskiðnskólanefnd

Fyrirspyrjandi (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. sjútvrh., hvað líði störfum fiskiðnskólanefndar, sem sjútvrh. skipaði 27. nóv. 1967 samkv. þál. frá 30. apríl 1964.