14.05.1969
Sameinað þing: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í D-deild Alþingistíðinda. (4034)

290. mál, vextir af innheimtum ríkissjóðstekjum

Fyrirspyrjandi (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég þakka svörin. Mér finnst það þó nokkur galli, að þarna eru teknir með, skilst mér, dráttarvextir, sem innheimtumenn hafa innheimt hjá gjaldendum og skilað til ríkissjóðs. En um þá var ekki spurt, en e.t.v. er ekki auðvelt fyrir hæstv. ráðh. að sundurliða þetta að svo komnu. (Gripið fram í: Má ég grípa inn í hjá hv. þm., en það væri ómögulegt að hafa ekki lengri tíma.) Það er einmitt það. Kannske væri hægt að fá upplýsingar um þetta einhvern tíma síðar. (Gripið fram í: Já.)