03.03.1969
Neðri deild: 58. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í B-deild Alþingistíðinda. (503)

135. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið afgr. frá hv. Ed. Alþ. einróma með shlj. atkv. þaðan. Ég vildi geta þess þegar. að ég legg á það áherzlu við þá n., sem málið fær hér til meðferðar, að hún hraði afgreiðslu þess svo sem kostur er, vegna þess að ekki má lengur dragast, að farið sé að framkvæma þau ákvæði laganna um greiðslu bóta samkvæmt þeim, ef meirihlutafylgi er til fyrir frv.

Í sambandi við gengisbreytinguna í nóv. s.I. lýsti ríkisstj. því yfir, að hún mundi beita sér fyrir hækkun á bótum almannatrygginga um a.m.k. samtals 150 millj. kr. Frv. það um hækkun á bótum almannatrygginga. sem hér liggur fyrir, er flutt í samræmi við þessa yfirlýsingu ríkisstj. Með frv. þessu er lagt til, að fjölskyldubætur verði hækkaðar um 10%. Fjölskyldubætur eru nú greiddar með hverju barni, samtals 3.961 kr. á ári, en hækka samkvæmt frv. þessu um 395 kr. og verða því frá l. jan. s.l. 4.356 kr. á ári. Fæðingarstyrkur hækkar í kr. 10.200 eða um ca. 33%. Lagt er til, að aðrar bætur hækki um 17%. Sem dæmi má nefna ellilífeyri til einstaklings. sem verið hefur um 36786 kr. á ári, en samkvæmt frv. hækkar hann um 6258 kr. og verður því 43048 kr. á ári frá 1. jan. s.l. að telja. Í sambandi við þá miklu hækkun. sem ákveðin var á daggjöldum sjúkrahúsa, hækkaði legukostnaður á fæðingardeild Landsspítalans og Fæðingarheimili Reykjavíkurborgar allverulega. Til þess að bæta fæðandi konum þessa miklu hækkun er lagt til í frv., að fæðingarstyrkurinn hækki svo sem áður er getið og að sjúkrasamlög greiði legudaga, sem verða umfram 7. Skv. núgildandi lögum greiða sjúkrasamlög aðeins legudaga, sem verða umfram 9. Með frv. er lagt til, að ákvæði þessi gildi frá 1. jan. s.l. Ef frv. verður að l., verður staða sængurkvenna gagnvart nefndum stofnunum í Reykjavík ekki lakari en hún hefur verið hingað til.

Í fjárl. þessa árs var gert ráð fyrir 90 millj. kr. hækkun á frumlagi ríkissjóðs til almannatrygginga til þess að mæta fyrirhuguðum hækkunum á bótum, sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Fjölskyldubætur höfðu verið áætlaðar 292 millj. kr. á þessu ári, en þær eru greiddar að fullu af framlagi ríkissjóðs til trygginganna. Af áðurnefndum 90 millj. kr. fara því 29,2 millj. til greiðslu á hækkunum á fjölskyldubótum. Gert er ráð fyrir því, að aðrir aðilar, sem bera uppi tryggingarnar, nefnilega hinir tryggðu, sveitarfélög og atvinnurekendur leggi á móti þeim 60.8 millj. kr., sem ríkissjóður leggur fram, í sömu hlutföllum og ákveðin eru í 23. gr. I. nr. 40 frá 1963, um almannatryggingar. Á þennan hátt hækka bæturnar samtals um 198.1 millj. kr. eða allmiklu meira en ráð var fyrir gert í áðurnefndri yfirlýsingu ríkisstj. Þegar iðgjöld hinna tryggðu og atvinnurekenda voru ákveðin með reglugerð I. samkvæmt rétt fyrir s.l. áramót, var gert ráð fyrir hækkun iðgjalda í samræmi við þær hækkanir bóta, sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Hjónaiðgjöld hækka úr 4.730 kr. í 5.500 kr., iðgjöld karla úr 4.300 kr. í 5.000 kr., iðgjöld kvenna úr 3.225 kr. í 3.750 kr., iðgjöld atvinnurekenda, sem voru 40 kr. fyrir hverja vinnuviku, hækka í 48 kr. fyrir hverja vinnuviku.

Í 3. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að bótahækkanir fyrir mánuðina jan. og febr. verði greiddar með bótagreiðslum marsmánaðar 1969.

Ég vil ítreka það, sem ég sagði í upphafi, að ég legg áherzlu á. að meðferð frv. verði hraðað svo sem mögulegt er, svo að unnt verði að greiða bótahækkanir fyrir jan. og febr. með bótagreiðslum marzmán., eins og frv. gerir ráð fyrir.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.