11.02.1969
Efri deild: 41. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í B-deild Alþingistíðinda. (519)
77. mál, Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna
Frsm. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á l. um Lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna, 77. mál Ed., hefur verið athugað í fjhn., og mælir hún samhljóða með samþykkt frv. á þskj. 215. Frv. þetta er flutt að beiðni Hjúkrunarfélags Íslands, og færir það hjúkrunarkonum, sem starfa að félagsmálum hjúkrunarkvenna á vegum félagsins, rétt til að vera meðlimir í Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna. Sams konar réttindi fékk BSRB fyrir sína starfsmenn með l. frá 1967. Eins og fram kemur í grg. með frv., þá mælir stjórn lífeyrissjóðsins með því, að þetta lagaákvæði verði samþ. Fjhn. þykir rétt að verða við þessum tilmælum.