13.02.1969
Neðri deild: 44. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í B-deild Alþingistíðinda. (597)
131. mál, yfirráðaréttur íslenska ríkisins yfir landgrunninu
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil láta í ljós ánægju með, að þetta frv. er komið fram og lýsa stuðningi við það. Þetta er stórmál, og yrði vafalaust erfitt úr að bæta, ef mistök yrðu á því að helga þjóðinni landgrunnið. Það er því áreiðanlega tímabært að taka af skarið um yfirráð Íslendinga yfir landgrunninu og því rétt að gera þetta frv. nú að lögum.