25.03.1969
Neðri deild: 69. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

11. mál, Listasafn Íslands

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Á fundi, sem haldinn var í menntmn. þessarar d. í morgun, kom til tals sú smávægilega breyting, sem Ed. hefur gert á frv. um Listasafn ríkisins. Var ekki að heyra á menntmn. mönnum, að þeir sæju neina ástæðu til þess, að málið yrði athugað frekar hér í d., og get ég því mælt með því, að það verði samþ. eins og það kemur frá Ed.