19.11.1968
Neðri deild: 17. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (66)

13. mál, vörumerki

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta frv., komið frá Ed., er staðfesting á brbl., en lög um vörumerki voru afgr. frá síðasta Alþ., en það þótti ekki fært, þegar til kom, að gildistaka þeirra gæti hafizt fyrr en 1. janúar 1969 af ýmsum ástæðum, sem snertu undirbúning mála til þess að svo gæti vel farið. Það er efni þessa frv., og leyfi ég mér að vænta þess, að það gæti fengið skjóta afgreiðslu hér í hv. þd.

Ég vil svo leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.