10.04.1969
Neðri deild: 74. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (786)

153. mál, eftirlaun forseta Íslands

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 415, hefur fjhn. þessarar hv. d. haft til meðferðar frv. til l. um eftirlaun forseta Íslands. N. hefur athugað frv., og þeir, sem viðstaddir voru á nefndarfundinum, sem voru allir nm., að undanskildum hv. 4. þm. Austf., mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt.