14.04.1970
Neðri deild: 72. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

174. mál, lax- og silungsveiði

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 534 að flytja brtt. við það frv., sem hér er til umr. Brtt. er þess efnis, að ráðh. skipi veiðimálanefnd til 4 ára í senn, en í frv. er ekki gert ráð fyrir tímatakmörkun í skipun n. Ég tel rétt og eðlilegt, þegar slíkar n. eru skipaðar samkvæmt lögum, að þá séu þær skipaðar til ákveðins tíma, kjörtímabil þeirra ákveðið, og legg því til í brtt., að það séu 4 ár.