25.04.1970
Neðri deild: 82. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (1095)

231. mál, Alþýðubankinn

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv. þetta til athugunar. Eins og fram kom í ræðu hæstv. viðskmrh. við 1. umr. þessa máls, er hér um að ræða frv., sem fyrir nokkuð mörgum árum var gert ráð fyrir, að komið gæti fyrir Alþ., þegar þannig væri ástatt, í sambandi við stofnun peningastofnunar Alþýðusambands Íslands. Frv. er flutt að beiðni þess og hefur fengið athugun í viðskmrn., eins og ráðh. gat um í ræðu sinni í gær. Fjhn. leggur til, eins og fram kemur á þskj. 677, að frv. verði samþ.