30.04.1970
Efri deild: 87. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)
220. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Bjarni Guðbjörnsson:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. þetta með fyrirvara og vildi með örfáum orðum gera grein fyrir þeirri afstöðu minni.
Framsfl. hefur á þessu þingi borið fram till. um lagfæringar á sköttum fyrirtækja. Með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er nokkuð gengið í þá átt, og því er ég fylgjandi.
Í hv. Nd. báru framsóknarmenn fram brtt. í þá átt að hækka persónufrádrátt frá því, sem nú er í lögum. Þær till. voru felldar, og er því sýnt, að breyt. á þeim l. um hækkun persónufrádráttar nái ekki fram að ganga á þessu þingi. Persónufrádráttur hefur ekki hækkað á undanförnum árum í hlutfalli við aukinn framfærslukostnað, og er því orðin brýn nauðsyn á, að hér verði breyting á. En með því að þetta frv. gerir ráð fyrir nokkurri lagfæringu, hvað snertir fyrirtækin og skattlagningu þeirra, og þeirrar lagfæringar er þörf og ég er henni fylgjandi, hef ég skrifað undir þetta nál., þar sem lagt er til, að frv. verði samþ., enda þótt ég hefði talið, að samhliða þyrfti að ganga til móts við hinn almenna skattgreiðanda og hækka persónufrádráttinn.