04.11.1969
Efri deild: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)
50. mál, Siglingamálastofnun ríkisins
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, hefur legið fyrir tveimur undanförnum þingum og þá verið fluttar fyrir því ítarlegar framsöguræður, svo að óþarft ætti að vera að hafa um það mörg orð nú, jafnvel þótt frv. sé allviðamikið.
Þessu frv. var vísað hér frá í hv. Ed. á síðasta þingi með þeim ummælum, að ríkisstj. væri falið að láta fram fara nánari athugun á frv., sérfróðra manna og aðila, sem hér hefðu hagsmuna að gæta, og léti síðan endurskoða frv. fyrir næsta Alþ., eins og í frávísuninni stóð. Með bréfi, dags. 3. okt. 1968, fór samgmrh. fram á umsögn um málið frá Guðmundi H. Oddssyni, formanni Fiskimannasambands Íslands, Jóni Sigurðssyni, formanni Sjómannasambands Íslands, og Sverri Júlíussyni, formanni Landssambands ísl. útvegsmanna. Þeir gáfu síðan sameiginlega umsögn, dags. 14. marz 1969, eftir að hafa kannað rækilega öll þau málefni, er frv. fjallaði um. Þessi sameiginlega umsögn þeirra er mjög ítarleg, og í niðurlagi hennar eru bornar fram nokkrar till. um breyt. á frv. Samgmrn. sendi síðan skipaskoðunarstjóra endurrit af umsögninni með bréfi, dags. 19. apríl 1969, og í samráði við skipaskoðunarstjóra fól rn. Þórði Eyjólfssyni fyrrv. hæstaréttardómara heildarendurskoðun frv., en hann var samtímis að endurskoða sérlög varðandi sömu stofnun, um eftirlit með skipum, og lög um skráningu og mælingu skipa. Það eru þessi frv., sem þegar hafa verið lögð fyrir Alþ. ásamt breyt. á atriðum í siglingalögum, er snerta þessi málefni.
Þetta var sú viðbótarskýring, sem ég vildi koma á framfæri hér við hv. þd., þegar málið er hér lagt fyrir Alþ. í þriðja sinn. Við endurskoðun þá, sem nú var framkvæmd á frv., hefur verið, eftir því sem unnt þótti, tekið tillit til till. Guðmundar H. Oddssonar, Jóns Sigurðssonar og Sverris Júlíussonar. Allar umsagnir þeirra eru prentaðar með frv. Frekari umsögn um þetta mál í þessari hv. d. væri endurtekning á því, sem um málið var sagt á síðasta og næstsíðasta þingi, og skal ég því ekki tefja tímann frekar, nema tilefni gefist til. En óskað er, að frv. nái fram að ganga, þar sem í því felast mörg skýrari og nánari ákvæði um störf þessarar stofnunar heldur en hingað til, og m. a, er bara nafnið á sjálfri stofnuninni allvillandi, með þau verkefni, sem henni eru falin lögum samkvæmt. En út í þá sálma skal ég ekki fara frekar. Ég vænti þess, að hv. þdm. kynni sér greinar frv. og þá ekki sízt þá viðbótargrg., sem þeir þremenningarnir, sem ég áðan tiltók, hafa fram lagt, að því er virðist með mikilli nákvæmni.
Ég óska þess, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og sjútvn.